Persónuverndarstefna
ALMENNT
Persónuvernd þín skiptir Rider ehf. miklu máli. Stefna þessi tekur til
persónuupplýsinga hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti,
á pappír eða með öðrum sambærilegum hætti. Stefnan tekur til skráningar, vörslu og
vinnslu á persónuupplýsingum sem falla undir stefnuna. Stefnan er aðgengileg á
heimasíðu félagsins og er viðskiptavinum einnig veittur kostur á að kynna sér stefnuna
við pöntun á þjónustu. Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er Rider ehf. (hér
eftir vísað til sem félagsins)
I. PERSÓNUVERNDARLÖGGJÖF
Um meðferð persónuupplýsinga gilda lög um persónuvernd og vinnslu
persónuupplýsinga nr. 90/2018, (hér eftir vísað til sem pvl.) eins og þau eru á hverjum
tíma, og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2016/679. (hér eftir vísað til sem
pvr.) Taka pvl. og pvr. m.a. á vinnslu, vörslu og miðlun persónuupplýsinga.
II. ÁBYRGÐ
Félagið ber ábyrgð á skráningu persónuupplýsinga og meðferð þeirra upplýsinga í
starfsemi sinni. Félagið er með lögheimili að Gylfaflöt 2, 112 Reykjavík. Hægt er að hafa
samband við okkur með því að senda skriflega fyrirspurn á personuvernd@fbg.is.
III. SÖFNUN OG NOTKUN
Við söfnum upplýsingum um:
• nafn þitt, símanúmer og netfang til að geta svarað fyrirspurnum og brugðist við
óskum þínum, t.d. til að senda þér upplýsingar eða til að svara spurningum
þínum og athugasemdum, nafn þitt, símanúmer, netfang ásamt kennitölu og bankanúmeri til að geta lokiðvið og uppfyllt kaup þín á þeirri þjónustu sem við bjóðum upp á eða höfum milligöngu um, nafn þitt, kennitölu, tegund, umfang og dagsetningu viðskipta til að geta
uppfyllt skyldu okkar samkvæmt bókhaldslögum.Þú getur skoðað og notað vefsvæði félagsins án þess að gefa upp nokkrar persónulegar upplýsingar. Hins vegar söfnum við upplýsingum sem vafri þinn sendir þegar þú nýtir þér þjónustu okkar, þ.e. gögn sem geta falið í sér upplýsingar eins og IP-tölu þína, tegund vafra, útgáfu vafra, síður þjónustunnar sem þú heimsækir, tíma og dagsetningu heimsóknar þinnar, þann tíma sem þú varðir á þessum síðum og önnur talnagögn. Allar þær upplýsingar sem félagið safnar eru nýttar til þess að framkvæma og bæta þjónustu fyrirtækisins við viðskiptavini. Þannig söfnum við þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að efna samningssamband eða til að svara fyrirspurnum þínum.
IV. MIÐLUN
Við seljum aldrei persónuupplýsingar um þig. Við miðlum aldrei persónuupplýsingum
til þriðja aðila án þess að samþykki þitt fyrir miðluninni liggi fyrir, nema þar sem okkur
er það skylt samkvæmt lögum.
Okkur er heimilt að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er
þjónustuveitandi, umboðsmaður eða verktaki okkar í þeim tilgangi að ljúka við
verkefni eða veita þér þjónustu eða vöru sem þú hefur beðið um eða samþykkt. Okkur
er einnig heimilt að deila upplýsingum með vinnsluaðilum þegar það er nauðsynlegt
til að vernda brýna hagsmuni t.d. við innheimtu á vanskilakröfu. Við deilum mögulega
upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi, með vinnsluaðilum sem vinna með okkur við
gæða og markaðsstarf. Við afhendum vinnsluaðilunum einungis þær
persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þá í framangreindum tilgangi og
gerum við þá vinnsluaðilasamning þar sem þeir undirgangast skyldu um að halda
upplýsingum um þig öruggum og nota þær einungis í framangreindum tilgangi.
Þá er athygli þín vakin á að allt efni sem þú birtir eða deilir á samfélagsmiðlasíðum
okkar eru opinberar upplýsingar. Athygli þín er vakin á að með því að tengja saman
síðureikning þinn og samfélagsmiðlareikninginn þinn gefur þú okkur leyfi til að deila
upplýsingum með veitanda samfélagsmiðlaþjónustunnar og notkun þeirra upplýsinga
sem við deilum stjórnast af stefnu samfélagsmiðilsins um persónuvernd. Ef þú vilt ekki
að persónuupplýsingum þínum sé deilt með öðrum notendum eða með veitanda
samfélagsmiðlaþjónustunnar, skaltu ekki tengja samfélagsmiðlareikninginn þinn við
síðureikninginn eða deila efni inn á samfélagsmiðla frá síðunni.
V. ÞRIÐJU AÐILAR
Persónuverndarstefnan nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðju aðila en við höfum
enga stjórn á né berum ábyrgð á notkun, birtingu eða öðrum verkum þeirra. Við
hvetjum þig því til að kynna þér persónuverndarstefnu þriðju aðila, þ. á m.
vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað á okkar, hugbúnaðarfyrirtækja á borð
við Facebook, Apple, Google og Microsoft ásamt þeirri greiðsluþjónustu sem þú kýst
að nota.
VI. VERNDUN
Félagið leggur mikla áherslu á að vernda allar persónuupplýsingar og hefur því yfir að
skipa innra eftirlitskerfi sem á að tryggja að ávallt skulu gerðar viðeigandi tæknilegar
og skipulagslegar öryggisráðstafanir.
Við munum tilkynna þér án ótilhlýðilegrar tafar ef það kemur upp öryggisbrot er
varðar persónuupplýsingarnar þínar sem hefur í för með sér mikla áhættu fyrir þig.
Með öryggisbroti í framangreindum skilningi er átt við brot á öryggi sem leiðir til
óviljandi eða ólögmætrar eyðingar persónuupplýsinga eða að þær glatist, breytist,
verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi.
Athygli þín er þó vakin á því að þú berð ábyrgð á persónuupplýsingum, t.d. nafni,
kennitölu og mynd, sem þú kýst að deila eða senda á almennum vettvangi t.d. í gegnum
TripAdvisor, spjallrás eða Facebook síðu félagsins.
Við viljum einnig taka fram að gagnaflutningur á internetinu er aldrei fullkomlega
öruggur. Þér er því bent á að láta okkur umsvifalaust vita ef þú telur hættu á að
tilteknar upplýsingar sem þú hefur gefið okkur séu í hættu.
VII. VARÐVEISLA
Félagið reynir eftir fremsta megni að halda persónuupplýsingum um þig nákvæmum
og áreiðanlegum og uppfærir þær eftir þörfum. Við varðveitum persónuupplýsingar
um þig í sex mánuði frá lokum viðskipta, nema þú hafir með samþykki þínu veitt okkur
heimild til að varðveita þær lengur eða ef okkur er það nauðsynlegt til að uppfylla
lagaskyldu, t.d. vegna ákvæða skatta- og bókhaldslaga. Við munum fara yfir allar
persónuupplýsingar um þig reglulega og meta hvort okkur sé heimilt að varðveita þær
áfram.
VIII. RÉTTINDI ÞÍN
Þú hefur rétt á og getur óskað eftir eftirfarandi upplýsingum með því að senda skriflega
fyrirspurn á personuvernd@fbg.is:
Að fá að vita hvaða persónuupplýsingar eru skráðar um þig og hvernig þær eru
tilkomnar og fá aðgang að persónuupplýsingunum.
Að fá upplýsingar um hvernig persónuupplýsingar um þig séu unnar.
Að persónuupplýsingar um þig séu uppfærðar og leiðréttar.
Að persónuupplýsingum um þig sé eytt, ef ekki er lengur málefnaleg ástæða til að
varðveita þær.
Að andmæla og / eða takmarka hvernig persónuupplýsingar séu unnar.
Að fá afhendar persónuupplýsingar sem þú hefur látið okkur í té eða að þær séu
sendar beint til annars aðila með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra
setja.
Að afturkalla samþykki þitt til vinnslu þegar vinnsla byggist á þeirri heimild með
sama hætti og þú gafst það eða með því að senda á okkur skriflega fyrirspurn.
Að fá upplýsingar um hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, þ.m.t. gerð
persónusniðs og þau rök sem þar liggja að baki og einnig þýðingu og fyrirhugaðar
afleiðingar slíkrar vinnslu.
Beiðni þín verður tekin til greina og þér afhentar upplýsingarnar (þegar það á við)
innan hæfilegs tíma, þó með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra gera,
þ.m.t. viðskiptaleyndarmál og hugverkaréttindi. Athygli er vakin á að innheimt er
sérstakt ljósritunargjald ef farið er fram á fleira en eitt afrit. Þér verður tilkynnt og
gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verði við beiðninni að fullu
eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar. Þú getur kvartað til Persónuverndar ef við
neitum að afhenda þér ákveðnar upplýsingar.
IX. BREYTINGAR
Persónuverndarstefnan er endurskoðuð reglulega og kann því að taka breytingum. Þér
er því ráðlagt að kynna þér persónuverndarstefnuna reglulega en breytingar á
stefnunni öðlast gildi við birtingu hér.
Við tökum öllum athugasemdum um persónuverndarstefnuna fagnandi og hvetjum
þig til að senda okkur fyrirspurn.
Persónuverndarstefna þessi tók gildi 5. júní 2025.